Heimamenn höfðu betur gegn Bandaríkjunum

Alexandre Lacazette, til hægri, skoraði fyrsta mark Frakklands í leiknum.
Alexandre Lacazette, til hægri, skoraði fyrsta mark Frakklands í leiknum. AFP/Nicolas Tucat

Frakkland skoraði þrjú gegn Bandaríkjunum í knattspyrnukeppninni á Ólympíuleikunum í París í kvöld.

Karlamegin keppa lið  23 ára og yngri auk þess sem þrír eldri leik­menn eru heim­ilaðir en tveir slíkir skoruðu mark í dag.

Staðan var 0:0 í hálfleik en 33 ára gamli Alexandre Lacazette kom Frakklandi yfir á 61. mínútu. Michael Olise skoraði svo annað mark liðsins og 24 ára gamli Loic Badé skoraði þriðja mark Frakklands á 85. mínútu.

Frakkland er í fyrsta sæti riðilsins en í öðru en Nýja Sjálandi og Gínea er í þriðja og Bandaríkin á botninum eftir fyrstu umferð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert