Fjögur mörk í fyrsta leik Andra

Andri Lucas Guðjohnsen.
Andri Lucas Guðjohnsen. Ljósmynd/KSÍ

Andri Lucas Guðjohnsen lék í kvöld sinn fyrsta mótsleik með belgíska liðinu Gent þegar það vann Víking frá Götu í Færeyjum, 4:1, í fyrri leik liðanna í 2. umferð undankeppni Sambandsdeildar Evrópu í Gent.

Andri, sem var keyptur frá Lyngby í sumar, spilaði allan leikinn en kom ekki við sögu í mörkunum fjórum. Hong Hyun-Seok skoraði tvö þeirra, Sven Kums og Julien De Sart sitt markið hvor.

Víkingarnir skoruðu hins vegar fyrsta mark leiksins þegar Jorgin Nielsen kom þeim yfir strax á 13. mínútu.

Forskotið ætti að vera nóg fyrir Andra og samherja hans fyrir Færeyjaferðina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert