Góður útisigur Íslendingaliðsins

Eggert Aron Guðmundsson leikur með Elfsborg.
Eggert Aron Guðmundsson leikur með Elfsborg. Ljósmynd/Elfsborg

Sænska liðið Elfsborg stendur vel að vígi í annarri umferð Evrópudeildar karla í knattspyrnu eftir góðan útisigur gegn Sheriff Tiraspol í Moldóvu í kvöld, 1:0.

Simon Hedlund skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu á 86. mínútu en seinni leikur liðanna  fer fram í Borås næsta fimmtudag.

Andri Fannar Baldursson og Eggert Aron Guðmundsson hófu báðir leikinn á varamannabekk Elfsborg en Eggert kom til leiks á 55. mínútu og Andri á 77. mínútu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert