Komast örugglega áfram

Orri Steinn Óskarsson var fremsti maður FCK í dag.
Orri Steinn Óskarsson var fremsti maður FCK í dag. mbl.is/Hákon Pálsson

Danska liðið FC Köbenhavn er komið með annan fótinn í þriðju umferð Sambandsdeildar karla í fótbolta eftir öruggan útisigur gegn Magpies á Gíbraltar í dag, 3:0.

Orri Steinn Óskarsson  lék í 74 mínútur með FCK en kom ekki við sögu í mörkunum sem Mohamed Elyounoussi, Viktor Claesson og Victor Froholdt skoruðu.

Rúnar Alex Rúnarsson var varamarkvörður hjá FCK og kom ekki við sögu í leiknum. Liðin mætast aftur á Parken í Kaupmannahöfn næsta fimmtudag. Sigurliðið mætir Banik Ostrava frá Tékklandi eða Urartu frá Armeníu í þriðju umferð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert