Lagði upp mark í risastórum Evrópusigri

Guðmundur Þórarinsson lagði upp mark.
Guðmundur Þórarinsson lagði upp mark. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Guðmundur Þórarinsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, lagði upp mark fyrir armenska liðið Noah í dag þegar það rótburstaði Sliema Wanderers frá Möltu í 2. umferð Sambandsdeildarinnar í fótbolta.

Noah vann leikinn 7:0 og er ansi öruggt með að komast í þriðju umferð keppninnar þar sem liðið mætir annaðhvort AEK Aþena frá Grikklandi eða Inter d'Escaldes frá Andorrra en AEK vann fyrri leikinn á heimavelli aðeins 4:3.

Guðmundur lék allan leikinn í dag í stöðu vinstri bakvarðar og lagði upp fimmta markið á 71. mínútu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert