Óhressir með tilboðið í Olmo

Dani Olmo með Evrópubikarinn í sumar.
Dani Olmo með Evrópubikarinn í sumar. AFP/Kirill Kudryavtsev

Barcelona hefur gert RB Leipzig tilboð í spænska knattspyrnumanninn Dani Olmo en hann hefur leikið með þýska liðinu undanfarin fjögur ár.

Sky Sports segir að tilboðið hafi hljóðað upp á rúmlega 60 milljónir evra, en þó aðeins 40 milljónir sem beint kaupverð og mismunurinn í bónusum. Þjóðverjarnir hafi ekki verið ánægðir með það og muni væntanlega hafna tilboðinu.

Olmo, sem er 26 ára sóknarmiðjumaður, fór á kostum með spænska landsliðinu þegar það varð Evrópumeistari í Þýskalandi í sumar en hann hefur skorað 11 mörk í 39 landsleikjum og var einn af markakóngum EM með þrjú mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert