Spánverjinn fer ekki með í æfingarferð Barcelona

Ansu Fati er 21 árs gamall.
Ansu Fati er 21 árs gamall. AFP/Pau Barrena

Spænski knattspyrnumaðurinn Ansu Fati fer ekki með Barcelona til Bandaríkjanna í æfingarferð liðsins vegna meiðsla.

Fati hefur verið óheppinn með meiðsli síðustu ár og var sendur á lán til Brighton & Hove Albion í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili og spilaði 19 leiki í deildinni með liðinu.

„Hann var ótrúlegur á fyrstu æfingunum, í frábæru formi og þú sást það á vellinum, það er ekki gott að hann sé ekki að koma með okkur í ferðina en við verðum að sætta okkur við það og hjálpa honum að koma sterkari til baka,“ sagði Hansi Flick, nýráðinn knattspyrnustjóri Barcelona.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert