De Gea til liðs við Genoa?

De Gea er líklega á leið til Ítalíu
De Gea er líklega á leið til Ítalíu AFP/Oli Scarff

Spænski markvörðurinn David de Gea er líklega á leið til Genoa á Ítalíu en hann hefur verið samingslaus í heilt ár eftir að hann yfirgaf Manchester United. Albert Guðmundsson leikur fyrir Genoa.

Ítalski blaðamaðurinn Gianluca di Marzio segir markvörðinn hafa samþykkt að ganga til liðs við félagið. De Gea lék í tólf ár fyrir Manchester United og var fyrirliði liðsins um tíma.

Albert Guðmundsson hefur verið orðaður við fjöldann allan af félögum upp á síðkastið en enn sem komið er er hann leikmaður Genoa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert