Fimm Íslendingar inn á í leik dönsku liðanna

Kristall Máni Ingason kom inn í lið Sönderjyske í dag.
Kristall Máni Ingason kom inn í lið Sönderjyske í dag. Ljósmynd/SönderjyskE

Leikur Sönderjyske og Lyngby í 2. umerð dönsku úrvalsdeildar karla í knattspyrnu er hafinn. 

Fimm Íslendingar eru inn á en þeir Daníel Leó Grétarsson, Atli Barkarson og Kristall Máni Ingason byrjuðu í liði Sönderjyske. 

Þá eru Sævar Atli Magnússon og Kolbeinn Birgir Finnsson báðir í byrjunarliði Lyngby. 

Leikurinn hófst fyrir rúmum 20 mínútum og staðan er 1:1. 

Uppfært:
Lokatölur urðu 1:1. Sævar fór af velli í hálfleik, Daníel á 72. mínútu og Kristall á 83. mínútu en Atli og Kolbeinn léku allan leikinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert