Landsliðsmaðurinn Ísak Bergmann Jóhannesson lagði upp fyrra mark Düsseldorf í sigri á Ipswich, 2:1, í æfingaleik liðanna á heimavelli Ipswich á Englandi í dag.
Ísak Bergmann lagði upp markið snemma leiks fyrir Þjóðverjann Danny Schmidt.
Ísak var á láni hjá Düsseldorf á síðustu leiktíð og var liðið afskaplega nálægt því að tryggja sér sæti í þýsku 1. deildinni en tapaði í vítaspyrnukeppni gegn Bochum.
Düsseldorf keypti Ísak fyrr í sumar frá FC Köbenhavn.