Fyrsti æfingaleikur Liverpool, enska úrvalsdeildarfélagsins í fótbolta, undir stjórn Arne Slot var spilaður í Bandaríkjunum í nótt.
Liverpool sigraði Real Betis frá Spáni, 1:0, og Dominik Szoboszlai skorði fyrsta markið undir stjórn Slot og Mohamed Salah gaf stoðsendinguna.
I will be updating this tweet with every goal of the Arne Slot era.
— MaestroMarcelo (@LFCMarcelo) July 27, 2024
1.Szoboszlai 34’ pic.twitter.com/czNlHZehJH
Flestir leikmenn spiluðu 64 mínútur en markmaðurinn Caoimhin Kelleher, fékk fyrri hálfleik á móti Vitezslav Jaros og hægri bakvörðurinn Conor Bradley var sá eini sem spilaði allan leikinn.