Slagur í æfingaleik

Jayson Molumby.
Jayson Molumby. Ljósmynd/West Brom

Knattspyrnumaðurinn Jayson Molumby, leikmaður West Brom í ensku B-deildinni, kýldi leikmann Mallorka í æfingaleik í dag.

Atvikið gerðist þegar um 40 mínútur voru liðnar af leiknum og staðan var 0:0. Leikmaður Mallorka ýtti í Molumby sem svaraði með því að kýla hann og taka hann hálstaki inni á miðjum vellinum.

Leikmenn beggja liða, þjálfarar og dómarar hlupu að þeim og það tók nokkrar mínútur að stilla til friðar en það tókst eftir nokkrar mínútur. Leikurinn hélt áfram og Mallorka sigraði, 1:0.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert