Brasilíski knattspyrnumaðurinn Endrick var kynntur sem nýr leikmaður spænska knattspyrnufélagsins Real Madríd í dag en hann skrifaði undir samning fyrir tveimur árum.
Real þurfti að bíða í tvö ár eftir sóknarmanninum sem hann var aðeins 16 ára þegar hann skrifaði undir en leikmenn þurfa að vera 18 ára til að gera félagsskipti á milli landa.
Hann kemur til Real frá Palmeiras í heimalandinu þar sem hann skoraði 21 mark í 82 leikjum. Endrick hefur spilað 10 leiki með brasilíska landsliðinu og keppti með liðinu í Ameríkubikarnum í sumar.
👕 @Endrick 👕#WelcomeEndrick pic.twitter.com/Anrbaf1mlS
— Real Madrid C.F. 🇬🇧🇺🇸 (@realmadriden) July 27, 2024
Hann spilar í treyju númer níu með Brasilíu en Kylian Mbappé fékk á treyju þegar hann kom fyrr í mánuðinum og Endrick mun spila í treyju númer 16.