Andri Lucas Guðjohnsen var hetja Gent í fyrsta leik sínum með liðinu í belgísku A-deildinni í knattspyrnu í dag en liðið sótti Kortrijk, lið Freys Alexanderssonar, heim í fyrstu umferð deildarinnar.
Gent keypti Andra af Lyngby í Danmörku í sumar og hann stóð undir væntingum í fyrsta leik því hann skoraði sigurmarkið, 1:0, á 59. mínútu leiksins.
Markið skoraði hann hjá félaga sínum í íslenska landsliðshópnum því Patrik Sigurður Gunnarsson varði mark Kortrijk í fyrsta skipti en félagið keypti hann á dögunum af Viking í Noregi.
Íslendingarnir léku báðir allan leikinn með liðum sínum.