Jesus er í frábæru formi

Gabriel Jesus í leiknum gegn Manchester United í nótt.
Gabriel Jesus í leiknum gegn Manchester United í nótt. AFP/Ronald Martinez

Knattspyrnumaðurinn Gabriel Jesus var í byrjunarlið Arsenal gegn Manchester United í æfingaleik í Bandaríkjunum í nótt.

Arsenal vann leikinn í venjulegum leiktíma 3:2 en tapaði 4:# í vítaspyrnukeppni. Jesus skoraði jöfnunarmark Arsenal og spilaði 71 mínútu.

„Hann lítur mjög vel út. Hann hefur breytt miklu í sumar og kemur til okkar í frábæru formi og þegar þú hefur þann grunn þá getur þú byggt svo mikið. Hann þarf að vera í þessu formi til þess að vera upp á sitt besta og hann veit það,“ sagði Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, á blaðamannafundi í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert