Leik Íslendingaliðsins frestað vegna veðurs

Andri Fannar Baldursson í keppnistreyju Elfsborg.
Andri Fannar Baldursson í keppnistreyju Elfsborg. Ljósmynd/Elfsborg

Leik Elfsborg og Djurgården í sænsku úrvalsdeild karla í knattspyrnu hefur verið frestað um allavega klukkutíma vegna veðurs. 

Það rigndi hellidembu á völlinn og gátu leikmenn ekki hafið leik klukkan 16.30 á sænskum tíma, 14.30 á íslenskum tíma. 

Leikurinn fer af stað í fyrsta lagi klukkan 15.30 á íslenskum tíma eða eftir tíu mínútur en Andri Fannar Baldursson er í byrjunarliði Elfsborg. 

Þá er Eggert Aron Guðmundsson á bekknum hjá liðinu. 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert