Nökkvi lagði upp í sigri

Nökkvi Þeyr Þórisson lagði upp mark í nótt.
Nökkvi Þeyr Þórisson lagði upp mark í nótt. Ljósmynd/St. Louis City

Knattspyrnumaðurinn Nökkvi Þeyr Þórisson lagði upp í 2:1-sigri St. Louis City gegn Dallas í bikarleik í Bandaríkjunum í nótt.

St. Louis er í þriðja riðli í bikarkeppninni með Dallas og LA Galaxy. Þetta var fyrsti leikurinn í riðlinum og tvö efstu liðiðin komast áfram en lið frá Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada taka þátt í keppninnni.

Dallas komst yfir eftir 18. mínútur en Cedric Teuchert skoraði jöfnunarmarkið á 27. mínútu eftir fyrirgjöf frá Nökkva og staðan var 1:1 í hálfleik.

Marcel Hartel skoraði svo sigurmark St. Louis á 49. mínútu úr vítaspyrnu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert