Fyrsti sigur landsliðsmannsins

Davíð Kristján Ólafsson og félagar í Cracovia unnu sinn fyrsta …
Davíð Kristján Ólafsson og félagar í Cracovia unnu sinn fyrsta leik í deild. Ljósmynd/KSÍ

Landsliðsmaðurinn Davíð Kristján Ólafsson og liðsfélagar hans í Cracovia unnu góðan útisigur á Raków, 1:0, í 2. umferð efstu deildar pólska fótboltans í dag. 

Cracovia er þar með í sjötta sæti deildarinnar eftir fyrstu tvo leikina. Liðið gerði jafntefli í fyrsta leik gegn Gilwice. 

Davíð lék allan leikinn fyrir Cracovia en hann gekk í raðir félagsins fyrr á árinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert