Góð innkoma Þorra dugði ekki

Þorri Mar Þórisson lagði upp.
Þorri Mar Þórisson lagði upp. Ljósmynd/Kristín Hallgrímsdóttir

Dalvíkingurinn Þorri Mar Þórisson og liðsfélagar hans í Öster máttu þola tap fyrir Helsingborg, 3:2, í sænsku B-deildinni í fótbolta í Helsingborg í dag. 

Öster er í öðru sæti deildarinnar með 29 stig en efstu tvö llið deildarinnar fara beint upp í sænsku úrvalsdeildina. 

Þorri kom inn á 69. mínútu í stöðunni 3:1 fyrir Helsingborg. Hann lagði upp seinna mark Öster sem minnkaði muninn í 3:2 tíu mínútum síðar en nær komust Öster-menn ekki. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert