Sara Björk á leið til Sádi-Arabíu

Sara Björk Gunnarsdóttir.
Sara Björk Gunnarsdóttir. Ljósmynd/Juventus

Knattspyrnukonan Sara Björk Gunnarsdóttir er að fara að skrifa undir hjá félagi í Sádí-Arabíu.

Samkvæmt áreiðanlegum heimildum mbl.is verður Sara tilkynnt hjá félaginu á föstudaginn ef læknisskoðun og annað gengur upp.

Hún var síðast hjá Juventus í ítölsku A-deildinni en fór þaðan þegar samningur hennar rann út í sumar.

Árni Vilhjálmsson, knattspyrnumaður og unnusti Söru, er að leita sér að félagi þar í kring en þau eiga son saman, Ragnar Frank Árnason. Árni lék með Novara í ítölsku C-deildinni síðasta vetur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert