Barcelona að landa Olmo?

Dani Olmo með Evrópubikarinn.
Dani Olmo með Evrópubikarinn. AFP/Kirill Kudryavtsev

Spænski landsliðsmaðurinn Dani Olmo hefur náð samkomulagi við Barcelona samkvæmt Sky Sports.

Olmo var í lykilhlutverki í Evrópumeistaraliði Spánar í sumar og hefur verið einn besti leikmaður þýsku deildarinnar undanfarin ár. Meiðsli hafa þó sett strik í reikninginn hjá sóknarmanninum en hann hefur misst mikið úr undanfarin þrjú ár.

Barcelona hefur enn ekki fengið samþykkt kauptilboð í leikmanninn en hann er samningsbundinn RB Leipzig næstu þrjú árin og verður væntanlega ekki ódýr.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert