Nani snýr heim

Nani er mættur til Lissabon
Nani er mættur til Lissabon Ljósmynd/Estrela Amadora

Fyrrverandi leikmaður Manchester United, portúgalski vængmaðurinn Nani, hefur skrifað undir samning við Estrela Amadora í portúgölsku deildinni. 

Nani er 37 ára gamall og var einn besti leikmaður ensku deildarinnar þegar hann var upp á sitt besta. Nani yfirgaf tyrneska liðið Adana Demirspor í maí og mun spila í heimalandinu á næsta tímabili.

Nani er alinn upp af Sporting Lissabon og spilaði, auk Manchester United, fyrir Fenerbache, Valencia og Lazio á ferlinum meðal annars. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert