Giroud tilkynntur í Bandaríkjunum

Olivier Giroud fær treyju númer níu.
Olivier Giroud fær treyju númer níu. Ljósmynd/LAFC

Franski knattspyrnumaðurinn Olivier Giroud var tilkynntur í dag hjá Los Angeles FC í bandarísku MLS-deildinni.

Giroud fór frá ítalska félaginu AC Milan eftir síðasta tímabil og hætti einnig með franska landsliðinu eftir Evrópumótið í sumar svo nú getur hann einbeitt sér alveg að LAFC.

Liðið er í öðru sæti í vestur hluta deildarinnar með 47 stig, tveimur stigum frá toppliðinu og á tvo leiki til góðs á LA Galaxy.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert