Sá markahæsti í spænsku deildinni farinn til Roma

Artem Dovbyk.
Artem Dovbyk. Ljósmynd/Roma

Knattspyrnumaðurinn Artem Dovbyk, markahæsti leikmaður spænsku deildarinnar í fótbolta á síðasta tímabili, var tilkynntur hjá Roma í ítölsku A-deildinni í dag.

Dovbyk er fyrsti úkraínski leikmaðurinn til þess að spila fyrir Roma en hann er 27 ára gamall framherji og kemur til liðsins frá Girona.

Hann skoraði 24 mörk í 36 leikjum í deildinni í fyrra og auk þess lagði hann upp átta mörk og liðið endaði í 3. sæti.

Hann fær treyju númer 11 hjá Roma sem lenti í 6. sæti í deildinni á síðasta tímabili.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert