Jón Dagur tryggði sigurinn

Jón Dagur Þorsteinsson skoraði í dag.
Jón Dagur Þorsteinsson skoraði í dag. Ljósmynd/Alex Nicodim

Jón Dagur Þorsteinsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, gulltryggði OH Leuven sigur á Genk, 3:1, í belgísku A-deildinni í dag.

Jón Dagur kom inn á sem varamaður á 67. mínútu og skoraði þriðja markið fyrir Leuven á 83. mínútu.

Leuven hefur því byrjað tímabilið vel en liðið er með fjögur stig eftir tvo fyrstu leikina.

Hin tvö Íslendingaliðin í deildinni spila á morgun. Kortrijk, með Patrik Sigurð Gunnarsson í markinu og Frey Alexandersson sem þjálfara, heimsækir þá Cercle Brugge og Gent, lið Andra Lucasar Guðjohnsens, á þá heimaleik gegn Dender.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert