Norski markahrókurinn til Madrídar

Alexander Sørloth fagnar marki fyrir Villarreal.
Alexander Sørloth fagnar marki fyrir Villarreal. AFP/Lluis Gene

Spænska knattspyrnufélagið Atlético Madríd hefur gengið frá kaupum á framherjanum Alexander Sørloth frá Villarreal.

Norðmaðurinn, sem er 28 ára, skoraði 26 mörk fyrir Villarreal í öllum keppnum á síðustu leiktíð og þar á meðal 23 mörk í spænsku 1. deildinni.

Hann gerir fjögurra ára samning við Atlético. Sørloth á að leysa Álvaro Morata af hólmi en Morata yfirgaf félagið og gekk í raðir AC Milan á Ítalíu á dögunum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert