Arsenal fór létt með Bayer Leverkusen, 4:1, í æfingaleik liðanna á heimavelli Arsenal í Lundúnum í dag.
Leverkusen tapaði ekki í Þýskalandi á síðustu leiktíð og varð tvöfaldur meistari.
Mörk Arsenal skoruðu Oleksandr Zinchenko, Leandro Trossard, Gabriel Jesus og Kai Havertz. Mark Leverkusen skoraði Adam Hlozek.