Argentínski knattspyrnumaðurinn Ángel Di María skrifaði undir nýjan samning við portúgalska félagið Benfica til 2025.
Samningur hans við félagið átti að renna út í sumar og hann var að skoða félög í heimalandinu en tókst ekki að tryggja sér lið þar.
Di Maria var lykilleikmaður liðsins á síðasta tímabili en hann skoraði 17 mörk og lagði upp 15 í 48 leikjum.
✍️ Mais um ano de águia ao peito 🫶
— SL Benfica (@SLBenfica) August 6, 2024
➔ https://t.co/g2HirgIOsF#DiMaría pic.twitter.com/9hu1yWVAYa