Häcken frá Svíþjóð fór afar léttilega með Paide frá Eistlandi, 6:1, í 3. umferð Sambandsdeildarinnar í knattspyrnu karla í Svíþjóð í kvöld.
Paide sló Stjörnuna út í síðustu viku, samanlagt 5:2, en Stjarnan vann fyrri leikinn í Garðabænum 2:1.
Seinni leikur liðanna fer fram í Eistlandi eftir viku en Häcken er gott sem komið áfram.
Landsliðsmaðurinn Valgeir Lunddal Friðriksson var ekki með Häcken í dag.