Þýski knattspyrnumaðurinn Marco Reus er á leiðinni til LA Galaxy en hann lék síðast með Dortmuind.
Reus er algjör goðsögn hjá Dortmund-liðinu en hann lék þar í 13 ár.
Samkvæmt bandarískum miðlum mun hann loksins ganga til liðs við LA Galaxy á næstu dögum eftir að hann náði samkomulagi við félagið í júní.
Samningur Reus mun gilda til ársins 2025 með möguleika á öðru ári.