De Gea kominn með félag

David de Gea er kominn með félag.
David de Gea er kominn með félag. AFP/Cristina Quicler

Spænski markmaðurinn David de Gea er kominn með félag rúmu ári eftir að hann fór frá enska úrvalsdeildarfélaginu í fótbolta Manchester United.

Samningur hans hjá United rann út 1. júlí 2023 en nú er hann að ganga til liðs við Fiorentina á Ítalíu samkvæmt félagskiptamógúlnum Fabrizio Romano.

Samningur de Gea gildir til 2025 með möguleika á að framlengja um eitt ár og samkvæmt Romano er hann að fara í læknisskoðun í hádeginu og skrifar undir eftir það.

Albert Guðmundsson hefur einnig verið orðaður við liðið og þeir verða því mögulega liðsfélagar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert