Markvörðurinn Halla Margrét Hinriksdóttir er gengin til liðs við Stjörnuna í Bestu deild kvenna í fótbolta.
Halla Margrét er 29 ára og hefur ekki spilað síðan á undirbúningstímabilinu árið 2022 með Aftureldingu en var varamarkvörður í Breiðabliki undir lok síðasta tímabils.
Auður Scheving sem hefur verið í baráttu um aðalmarkvarðarstöðuna í Stjörnunni í sumar er farin út til Bandaríkjanna þar sem hún spilar í háskólaboltanum með Louisiana State-háskólanum.
Halla Margrét hefur spilað 28 leiki í úrvalsdeildinni en hún spilaði þar síðast með Stjörnunni árið 2021.