Knattspyrnumennirnir Jason Daði Svanþórsson, Willum Þór Willumsson og Brynjar Ingi Bjarnason fóru allir meiddir af velli með félagsliðum sínum í dag.
Willum spilaði sinn fyrsta leik með Birmingham í fyrsta leik liðsins í C-deild á Englandi en Birmingham gerði 1:1 jafntefli gegn Reading. Hann var í byrjunarliði en fór meiddur af velli á 57. mínútu.
Fyrir það skapaði hann hættulegt færi en hann keyrði upp völlinn og sendi boltann fyrir en Alfie May náði ekki að skalla boltann í markið.
Brynjar Ingi Bjarnason var í byrjunarliði HamKam í í norsku úrvalsdeildinni sem sigraði Haugesund, 1:0, í dag. Hann fór meiddur af velli undir lok fyrri hálfleiks. HamKam er í 7. sæti í deildinni með 21 stig.