Jason Daði Svanþórsson fór í sumar frá Breiðabliki yfir í Grimsby Town í ensku D-deildinni í fótbolta en meiddist í fyrsta leik hans í deildinni með liðinu í dag.
Grimsby mætti Fleetwood Town og tapaði 1:0. Jason var í byrjunarliði og fékk ágætis færi til þess að koma liðinu yfir í upphafi leiks. Það komu mistök í vörn Fleetwood og Jason náði skoti á markið en það var varið.
Jason fékk annað tækifæri stuttu seinna eftir fyrirgjöf á fjær en hann náði ekki stjórn á boltanum. Hann fékk svo högg á hæri fótinn en gat haldið áfram í smá stund eftir aðhlynningu en á 30. mínútu þurfti hann að fá skiptingu.