Óttar skoraði í fyrsta leik með SPAL

Óttar Magnús að fagna markinu í dag.
Óttar Magnús að fagna markinu í dag. Ljósmynd/SPAL

Óttar Magnús Karlsson skoraði jöfnunarmark SPAL í 2:1 tapi liðsins gegn U23 ára liði Atalanta í bikarkeppni neðrideilda á Ítalíu.

Óttar var í byrjunarliði og jafnaði metin fyrir SPAL á 52. mínútu en hann kom til liðsins í byrjun mánaðars. Pietro Tornaghi skoraði sigurmark Atalanta á annarri mínútu uppbótartímans og SPAL er úr leik.

Kristófer Jónsson spilaði allan leikinn með Triestnia þegar liðið datt einnig úr bikarkeppninni eftir 1:0-tap gegn Trento í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert