Karlalið Chelsea og Inter Mílanó í knattspyrnu gerðu jafntefli, 1:1, í vináttulandsleik sem fór fram á Stamford Bridge í Lundúnum í dag.
Bæði lið eru nú að leggja lokahönd á undirbúning sinn fyrir tímabilið sem senn hefst í efstu deildum Englands og Ítalíu.
Marcus Thuram kom Inter í forystu á 26. mínútu og virtist Inter vera að sigla eins marks sigri í höfn.
Lesley Ugochukwu jafnaði hins vegar metin fyrir heimamenn í Chelsea á 90. mínútu og þar við sat.