Sigur í fyrri leik Liverpool í dag

Luis Diaz skoraði tvö mörk í dag.
Luis Diaz skoraði tvö mörk í dag. AFP/Peter Powell

Enska knattspyrnufélagið Liverpool sigraði spænska Sevilla, 4:1, í æfingaleik liðanna á Anfield í dag. 

Þetta var fyrri leikur Liverpool í dag en liðið mætir svo Las Palmas, sem er í 1. deild á Spáni líkt og Sevilla, seinna í dag á Anfield. 

Liverpool tefldi fram öflugu byrjunarliði gegn Sevilla en Alisson Becker var í marki, Trent Alexander-Arnold, Jarell Quansah, Virgil van Dijk og Kostas Tsimikas mynduðu varnarlínuna, Alexis Mac Allister, Ryan Gravenberch og Dominik Szoboszlai voru á miðju og Mohamed Salah, Diogo Jota og Luis Diaz voru í sókn.

Sevilla skipti spilatímanum á milli leikmanna en allir nema Ramon Martinez og Saul Niguez fóru út af í hálfleik.

Jota skoraði fyrsta mark Liverpool og Luis Dias bætti tveimur við í fyrri hálfleik. Gerard Fernandez minnkaði munn fyrir Sevilla áður en Trey Nyoni skoraði fjórða mark Liverpool.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert