Stórt tap í fyrsta leik Guðlaugs Victors

Guðlaugur Victor Pálsson.
Guðlaugur Victor Pálsson. Ljósmynd/Plymoth

Knattspyrnumaðurinn Guðlaugur Victor Pálsson spilaði sinn fyrsta leik með Plymouth í B-deild á Englandi en liðið tapaði stórt gegn Sheffield Wednesday, 4:0.

Guðlaugur spilaði allan leikinn í hægri bakverði en Jamal Lowe skoraði fyrsta mark Sheffield á 35. mínútu og Plymouth var 1:0 undir í hálfleik. Brendan Galloway skoraði sjálfsmark á 52. mínútu.

Stuttu eftir annað markið gerði Wayne Rooney, knattspyrnustjóri Plymouth, fjórfalda skiptinu en þrátt fyrir það skoraði Josh Windass þriðja mark Sheffield og Michael Smith bætti fjórða markinu við á sjöttu mínútu uppbótartímans.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert