Þriðja tilboð Newcastle í landsliðsmanninn

Marc Guehi.
Marc Guehi. AFP/Adrian Dennis

Enska úrvalsdeildarfélagið Newcastle United lagði fram þriðja tilboðið í enska miðvörðinn Marc Guehi.

Guehi er samningsbundinn Crystal Palace til 2026 og félagið hafnaði fyrstu tveimur tilboðum Newcastle í hann en Palace vill 65 milljónir punda fyrir hann. Þriðja tilboð Newcastle er 55 milljónir punda.

Guehi er 24 ára miðvörður og var frábær fyrir enska landsliðið á Evrópumótinu í sumar þegar liðið komst alla leið í úrslitaleikinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert