Knattspyrnumaðurinn Albert Guðmundsson færist nær ítalska félagsins Fiorentina.
Ítalski blaðamaðurinn Gianluca Di Marzio segir frá og samkvæmt honum gæti allt verið frágengið á morgun.
Albert er leikmaður Genoa en hann átti frábært tímabil með liðinu í ítölsku A-deildinni síðast.
Stærstu lið Ítalíu hafa öll verið orðuð við Íslendinginn en hann virðist ætla fara til Fiorentina.