Draumabyrjun Mbappé hjá Real Madrid

Vinicius Júnior faðmar Kylian Mbappé.
Vinicius Júnior faðmar Kylian Mbappé. AFP/Wojtek Radwanski

Franska knattspyrnustjarnan Kylian Mbappé skoraði annað mark Real Madrid í 2:0-sigri á Atalanta í leiknum um Meistarabikar Evrópu í Varsjá í kvöld. 

Real Madrid vann þar með Meistarabikarinn en á hverju ári mætast sigurvegarar Meistaradeildarinnar og Evrópudeildarinnar í leiknum. 

Federico Valverde kom Real Madrid yfir á 59. mínútu eftir sendingu frá Vinicius Júnior og á þeirri 68. var komið að Kylian Mbappé sem skoraði eftir sendingu Jude Bellingham. 

Fyrsti leikur Real Madrid í spænsku 1. deildinni er næstkomandi sunnudag gegn Mallorca á Mallorca. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert