Hættir eftir 108 landsleiki

Daley Blind lék lengi með hollenska landsliðinu.
Daley Blind lék lengi með hollenska landsliðinu. AFP/Raul Arboleda

Knattspyrnumaðurinn Daley Blind hefur lagt landsliðsskóna á hilluna eftir að hafa leikið 108 leiki á 11 árum fyrir Holland. 

Blind var lykilmaður í hollenska landsiðinu í áratug. Hann var í hollenska liðinu sem hafnaði í þriðja sæti á HM í Brasilíu árið 2014. 

Blind, sem spilar fyrir Girona á Spáni, ólst upp hjá Ajax en árið 2014 var hann keyptur til Manchester United þar sem hann var í fjögur ár. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert