Júlíus spilar hverja mínútu í spútnikliðinu

Júlíus Magnússon er lykilmaður hjá Fredrikstad.
Júlíus Magnússon er lykilmaður hjá Fredrikstad. mbl.is/Óttar Geirsson

Júlíus Magnússon og liðsfélagar hans í Fredrikstad unnu dramatískan sigur á botnliði Haugesund, 1:0, í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í Fredrikstad í dag. 

Júlíus, sem er fyrirliði liðsins, var að vanda á sínum stað í byrjunarliði Fredrikstad og lék allan leikinn. 

Anton Logi Lúðvíksson kom þá inn á 63. mínútu fyrir Haugesund. 

Nýliðar Fredrikstad eru í fimmta sæti deildarinnar með 31 stig en Haugesund er í 16. og neðsta sæti með 17.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert