Pólski knattspyrnumarkmaðurinn Wojciech Szczesny er samningslaus en hann yfirgaf herbúðir Juventus í dag.
Szczesny gekk í raðir Juventus árið 2017 frá Roma en hann á að baki 252 leiki fyrir félagið þar sem hann hefur þrisvar sinnum orðið Ítalíumeistari.
Pólverjinn var áður markvörður Arsenal og spilaði 150 leiki með félaginu frá 2010 til 2015.