Albert á leið í læknisskoðun

Albert Guðmundsson er á leið til Fiorentina.
Albert Guðmundsson er á leið til Fiorentina. Ljósmynd/Alex Nicodim

Knattspyrnumaðurinn Albert Guðmundsson er á leiðinni í læknisskoðun hjá ítalska A-deildarfélaginu Fiorentina og mun að öllu óbreyttu ganga í raðir félagsins fyrir helgi.

Það er ítalski félagaskiptasérfræðingurinn Fabrizio Romano sem greinir frá þessu en Fiorentina fær Albert á lánssamningi frá Genoa með kaupmöguleika eftir tímabilið. Félagið frá Flórens greiðir átta milljónir evra fyrir lánið og þarf að reiða fram 20 milljónir til viðbótar til að kaupa sóknarmanninn.

Genoa mun fá Andrea Pinamonti frá Sassuolo í staðinn fyrir Albert, en Albert á að leysa Nicolás González af hólmi hjá Fiorentina.

Fiorentina endaði í áttunda sæti ítölsku A-deildarinnar á síðustu leiktíð.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert