Franski knattspyrnumaðurinn Youssouf Fofana er á leiðinni frá AS Mónakó til ítalska stórveldisins AC Milan.
SkySports á Ítalíu greinir frá en Fofana var orðaður við Manchester United fyrr í sumar.
AC Milan mun greiða 17 milljónir punda fyrir Frakkann en 4 milljónir punda gætu bæst við með árangurstengdum greiðslum.
Fofana mun skrifa undir fimm ára samning hjá AC Milan en hann er 25 ára gamall.