Albert kominn í fjólublátt

Albert Guðmundsson er orðinn leikmaður Fiorentina.
Albert Guðmundsson er orðinn leikmaður Fiorentina. Ljósmynd/Fiorentina

Ítalska knattspyrnufélagið Fiorentina hefur endanlega staðfest að Albert Guðmundsson sé kominn til félagsins en hann kemur að láni frá Genoa. Leika bæði lið í ítölsku A-deildinni.

Fiorentina greiðir átta milljónir evra fyrir lánið og getur síðan keypt íslenska sóknarmanninn á 20 milljónir til viðbótar eftir tímabilið.

Albert sló í gegn með Genoa á síðustu leiktíð og hefur verið orðaður við hvert stóra félagið á fætur öðru undanfarnar vikur og mánuði, en hann getur nú einbeitt sér að því að spila með fjólubláa liðinu frá Flórens.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert