Albert Guðmundsson er genginn til liðs við ítalska knattspyrnufélagið Fiorentina.
Albert kemur til félagsins á láni frá Genoa. Að sögn félagaskiptasérfræðingsins Fabrizio Romano borgar Fiorentina átta milljónir evra fyrir lánið og þarf að reiða fram 20 milljónir til viðbótar til að kaupa sóknarmanninn eftir tímabilið.
Fiorentina endaði í áttunda sæti ítölsku A-deildarinnar á síðustu leiktíð og leikur í Sambandsdeildinni á komandi leiktíð.