Barcelona byrjaði tímabilið á 2:1 sigri gegn Valencia í spænsku 1. deildinni á heimavelli Valencia í kvöld.
Valencia tók forystuna á 44. mínútu með marki frá Hugo Duro. Robert Lewandowski jafnaði metin á fimmtu mínútu í uppbótartíma fyrri hálfleiks eftir stoðsendingu frá Lamine Yamal.
Snemma í síðari hálfleik nældi Brasilíumaðurinn Rapinha í víti fyrir Barcelona. Lewandowski steig á punktinn og skoraði af miklu öryggi, 2:1.
Fleiri urðu mörkin ekki og byrjar Barcelona mótið á þremur punktum í fyrsta leik Hansi Flick við stjórnartaumana.