Ríkjandi meistarar í Inter Mílanó gerðu 2:2 jafntefli við Genoa í ítölsku A-deildinni í Genúa í dag.
Alessandro Vogliacco skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Genoa á 20. mínútu. Franski sóknarmaðurinn Marcus Thuram jafnaði metin 10 mínútum síðar fyrir Inter.
Thuram skoraði sitt annað mark á 82. mínútu og kom Inter yfir.
Á þriðju mínútu í uppbótartíma fékk Genoa víti. Junior Messias steig upp og tók vítið en Yann Sommer varði frá honum. Heppilega fyrir Messias náði hann frákastinu og skoraði í opið markið.
Parma og Fiorentina, nýja lið Albert Guðmundssonar, skildu jöfn, 1:1, í Parma í dag.
Rúmeninn Dennis Man kom Parma yfir á 22. mínútu. Fyrirliðinn Cristiano Biraghi jafnaði metin fyrir Fiorentina á 75. mínútu.
Albert Guðmundsson var ekki með Fiorentina í dag en hann skrifaði undir hjá félaginu í gær.